Undir merkjum Culina býður Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari upp á fjölbreytt úrval matreiðslunámskeiða við allra hæfi. Hvort sem þú ert byrjandi í matargerð eða starfar í matvælaframleiðslu og vilt efla hæfni þína, þá býður Culina upp á matreiðslunámskeið sem henta.
Námskeið í matargerð eru sérsniðin fyrir hópa og jafnvel fyrir einstaklinga, því það er áskorun fólgin í því að elda fyrir einn.
Matreiðslunámskeið "Eldað úr öllu" voru fyrst haldin þegar Dóra Svavarsdóttir tók þátt í Zero Waste verkefninu um matarsóun. Námskeiðið “Eldað fyrir einn” var þróað eftir að Dóra hélt námskeið fyrir Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og BSRB félaga. Þá hefur hún haldið matreiðslunámskeið um óþol eða ofnæmi í samstarfi við PKU félagið og hefur því sérþekkingu á próteinsnauðu fæði.